We have the news now
http://www.mbl.is/sport/enski/2017/05/17/stjorinn_yfirgefur_watford/
Stjórinn yfirgefur Watford
You must log in or register to see images
Walter Mazzarri. AFP
Watford mun þurfa að finna sér nýjan knattspyrnustjóra fyrir næsta tímabil í ensku úrvalsdeildinni, en Walter Mazzarri mun yfirgefa félagið eftir síðasta leikinn á yfirstandandi tímabili á sunnudag.
Í yfirlýsingu frá Watford segir að Mazzarri mun yfirgefa liðið í sumar eftir að hafa rætt við stjórnina um framtíðaráætlanir og markmið liðsins. Síðasti leikurinn undir hans stjórn verður gegn Manchester City á heimavelli á sunnudag.
Hinn 55 ára gamli Mazzarri hefur aðeins stýrt Watford í eitt ár en liðið situr í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar fyrir lokaumferðina.
Hinn ítalski Mazzarri er reynslumikill þjálfari sem hefur þjálfað lið á borð við Inter, Napoli og Sampdoria. Síðast var hann við stjórnvölinn hjá Inter tímabilið 2013-14 en var rekinn í nóvember 2014. Hann stýrði liði Inter í Evrópuleikjunum á móti Stjörnunni.
And in English
Watford will have to find a new manager for the next season in the Premiership, as Walter Mazzarri will leave the club after the last game in the current season on Sunday.
According to a statement from Watford, Mazzarri will leave the team this summer after discussing the board's future plans and goals. The last game under his control will be against Manchester City at home on Sunday.
The 55-year-old Mazzarri has only managed Watford for one year, with the team is in the 16th place in the Premier League before the final round.
The Italian Mazzarri is an experienced coach who has a team like Inter, Napoli and Sampdoria. Lastly, he was in control during the Inter 2013-14 season but was sacked in November 2014. He led Inter in the Europa league against Stjarnan.